Djúpt í klettinum var hús Í horni hússins var arinn Í arninum var aska Við öskuna var brenni Við brennið var bekkur Fyir framan bekkinn var borð Við brún borðsins var stóll Á stólnum hékk jakki Í jakkanum var vasi Í vasanum var steinn Pétur tók steininn Fór með hann út Og setti hann við rætur klettsins